6.7 C
Selfoss

Stjórn SASS ítrekar kröfu um fleiri hjúkrunarrými á Selfossi

Vinsælast

Stjórn SASS ítrekaði á fundi sínum 7.-8. september sl. kröfu sína til heilbrigðisráðuneytisins þess efnis að fyrirhugað hjúkrunarheimili á Selfossi, sem nú er í undirbúningsferli, verði hannað miðað við að rúma 60 einstaklinga með stækkunarmöguleika upp í 80–90 hjúkrunarrými, en ekki 50 eins og kveðið er á um í samningi aðila.

Núverandi áætlun um 50 rými gerir ráð fyrir að rýmum á Suðurlandi fjölgi um 15, þar sem 35 rými sem voru fyrir á Blesastöðum og Kumbaravogi gangi inn í hið nýja heimili. Í samþykkt stjórnar SASS segir að fjölgunin sé engan veginn næg til að mæta þörf fyrir hjúkrunarrými á svæðinu. Þá verði að horfa til þess að brýn þörf er fyrir rými til að nýta til hvíldarinnlagna í Árnessýslu en nú eru einungis þrjú skilgreind hvíldarrými fyrir íbúa hennar. Íbúum fjölgar mjög hratt í sýslunni og brýnt sé að horfa til framtíðar hvað fjölda rýma varðar og þeirrar hagkvæmni sem fælist í því að reka fleiri rými í einni og sömu einingunni. Stjórn SASS þykir miður að niðurstaða varðandi fjölgun rýma liggi enn ekki fyrir, nú þegar talsvert er liðið á undirbúningsferlið og skil gagna vegna hönnunarsamkeppni fara fram. Stjórn SASS þykir það bera vott um skammsýni að ekki sé tekin ákvörðun um fjölgun rýma.

Nýjar fréttir

JÓLAHÚFA GUMMA LITLA

Jólahugleiðing

Ævintýri á Jólaey