6.1 C
Selfoss

Sindratorfæran á laugardaginn – Skemmtun fyrir alla fjölskylduna

Vinsælast

Sindratorfæran fer fram næsta laugardag, þann 11. maí, á Hellu. 30 keppendur eru skráðir til leiks í 2 flokkum. Hafa þeir nýtt tímann vel í vetur, smíðað nýja bíla og lagfært þá eldri. Meðal keppenda er Íslandsmeistarinn og sigurvegarinn frá því í fyrra, Skúli Kristjánsson, á Simba. Skúli var sigursæll í fyrra og var á palli í flestum keppnum sumarsinns. 

Margir úr keppendahópnum hafa keppt í torfæru í fjölda ára og nokkrir að koma til baka eftir nokkurt hlé. Þeirra á með fyrrum Íslandsmeistarinn Jón Örn Ingileifsson en hann keypti Íslandsmeistarabílinn Heklu og ætlar sér allt annað en að vera bara með. Nokkrir keppenda eru að keppa í fyrsta sinn og verður gaman að sjá hvort þeir nái að elta þá reyndari.

Ekki fleiri keppendur í 18 ár

Fara þarf aftur til ársinns 2006 til þess að sjá þennan fjölda keppenda skráða til leiks. En mikill uppgangur er í sportinu og sennilega til hátt í 50 bílar á landinu sem eru tilbúnir í keppni. 

Það eru Flugbjörgunarsveitin á Hellu og Akstursíþróttanefnd Heklu sem standa að keppninni, sem hefur verið haldin nær óslitið síðan 1973. Keppnissvæðið er í Tröllkonugili rétt austan Hellu en þar eru kjör aðstaða fyrir áhorfendur að tilla sér í brekkurnar og fylgjast með þessum 1000 hestafla græjum reyna fyrir sér í sandbrekkum, börðum, fleytingum á ánni og í mýrinni. 

Torfæra er skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Síðustu ár hafa um 5000 manns verið á svæðinu og allir haft gaman að því að skoða græjurnar og sjá þær svo takast á við brautirnar. Bein útsending verður frá keppninni á Youtube og Rúv 2 fyrir þá sem ekki komast á staðinn. Auðvelt að finna á youtube með því að leita eftir Sindratorfæran live.

Allar upplýsingar má finna á Facebook-viðburðinum Sindratorfæran 11 maí 2024, sömuleiðis er áhugasömum bent á Facebook-hópinn Torfæruáhugamenn, þar sem hægt er að fylgjast með keppendum í undirbúningnum.

Nýjar fréttir