8.9 C
Selfoss

Segð´eitthvað fyndið í kvöld

Vinsælast

Segð’eitthvað fyndið er glæný og bráðfyndin uppistandssýning með Þórhalli Þórhallsyni. Í sýningunni fer Þórhallur meðal annars yfir það hvernig er að verða faðir í fyrsta sinn á fertugsaldri, eiga móður sem er dauðhrædd um að hann endi í skurði, þegar rappararnir í Rottweilerhundum vildu ekki bjóða honum með, vandræðaleg heitapottssaga og margar aðrar góðar sögur.

Þórhallur er búinn að halda nokkrar sýningar í Tjarnarbíó við frábærar undirtektir og núna er komið að Suðurlandinu, en uppistandið verður sett á svið í Skyrgerðinni, Hveragerði, í kvöld, föstudaginn 10. maí.
Þórhallur hefur verið í uppistandinu í 20 ár og vann keppnina Fyndnasti Maður Íslands árið 2007.

Ekki missa af þessari bráðfyndnu sýningu og tryggðu þér miða strax!

Nýjar fréttir