0.6 C
Selfoss

Set styður myndarlega við Krabbameinsfélag Árnessýslu

Vinsælast

Set á Selfossi hefur gert samstarfssamning til þriggja ára við Krabbameinsfélag Árnessýslu. Fyrirtækið mun í stað beins framlags styðja við starfsemina með þriggja ára samningi. Við undirritun samningsins í síðustu viku sagði Svanhildur Ólafsdóttir, formaður Krabbameinsfélags Árnessýslu; „Við erum gríðarlega þakklát fyrir þennan styrk og samstarfið er afar þýðingarmikið fyrir félagið. Þetta tryggir félaginu tækifæri til að eflast og stækka. Bæði hvað varðar að halda úti góðri aðstöðu og að  þjónustuframboð fyrir þá sem sækja til félagsins. Þá hefur félagið, þrátt fyrir Covid-19 tekist að vera sýnilegt í samfélaginu og eflst og náð að vera meira til staðar, hvort sem það hefur verið fyrir þá sem hafa löngu lokið meðferð, eru í meðferð og aðstandendur. Ykkar styrkur gefur okkur færi á að styðja áfram með myndarlegum hætti við þá sem þurfa á þjónustu okkar að halda.“

Bergsteinn Einarsson, forstjóri Set sagði í samtali við blaðamann að styrkur með þessum hætti væri nýlunda hjá fyrirtækinu í stuðningi við velferðarfélög. „Hugmyndin kom til í samtali Svanhildar hjá Krabbameinsfélagi Árnessýslu og Reynis Guðmundssonar, fjármálastjóra Set að útfæra þetta með þessum hætti. Það er orðið að veruleika og við erum afskaplega stolt af samstarfinu og væntum góðs því.“

Nýjar fréttir