9.5 C
Selfoss

Syngjum selunum nýjan söng í Strandarkirkju

Vinsælast

Næstu tónleikar á tónlistarhátíðinni Englar og menn í Strandarkirkju verða sunnudaginn 23. júlí kl. 14. Syngjum selunum nýjan söng er yfirskrift tónleikanna þar sem fram fram koma tenórsöngvarinn Gissur Páll Gissurarson, Pamela De Sensi flautuleikari og Steingrímur Þórhallsson organisti.

Á tónleikunum verður boðið upp á tónlist eftir meðal annars Donizetti, Rossini, Sigvalda Kaldalóns og Schubert, allt frá operuaríum yfir í íslensk sönglög. Einnig verða frumflutt fjögur ný lög eftir Steingrím við ljóð Guðrúnar Valdimarsdóttur sem lést 102 á síðasta ári. Pamela hafði frumkvæði að verkunum þar sem hún dáðist að þessari hressu konu sem þótti svo vænt um ljóðin sín og bjó ekki svo langt frá Strandakirkju.

Aðgangseyrir er kr 3.500 og miðasala er við innganginn.

Tónlistarhátíðin er styrkt af Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, Tónlistarsjóði kirkjunnar og STEFs og Tónlistarsjóði.

Nýjar fréttir