10 C
Selfoss

Haustgildi er komið til að vera

Vinsælast

Haustgildi, menning er matarkista, var haldin helgina 10. – 11.9. Á Stokkseyri í annað sinn. Að þessu sinni var miðja hátíðarinnar í Hafnargötunni á Stokkseyri.

Fleiri aðilar tóku þátt í þetta sinn og fleiri viðburðir bættust við. “Þar ber helst að nefna kannski að Sólheimar voru með og tóku með sér alla sína reynslu og mikið vöruúrval og það er mikill fengur að hafa þau með okkur á hátíðinni. Sápufólkið komu líka með vörur unnar úr hreindýrafitu sem lagðist svo vel í gesti að Sápufólkið kláruði allar þær vörur sem þau komu með, segir Pétur Már Guðmundsson, einn af skipuleggendum Haustgildis.

Ljóðalestur þegar orðinn fastur liður á hátíðinni

Pedro Gunnlaugur á Brimrót.

Upplestrar voru á Brimrót báða dagana. „Á laugardag voru þau Harpa Rún Kristjánsdóttir og Pedro Gunnlaugur Garcia sem lásu úr sínum verkum og Jón Hjartarsson og Draumey Aradóttir lásu svo upp úr nýútkomnum ljóðabókum sínum á sunnudeginum. Frábært að fá þessa höfunda í heimsókn og þetta er þegar orðinn fastur liður á Haustgildi.“

Júlíus Óttar á Brimrót.

„Dagskrá laugardagsins lauk líka með tónleikum Eyjólfs Eyjólfssonar og Luke Starkey í Stokkseyrarkirkju sem voru einstaklega vel heppnaðir en fyrr um daginn hafði Júlíus Óttar leikið á tónleikum á Brimrót af sinni alkunnu snilld. Þessi tónleikaatriði og sérstaklega í Stokkseyrarkirkju eru vonandi komin til að vera. Það var einkar ljúft að ljúka deginum með tónleikum í Stokkseyrarkirkju. Ölvisholt, Korngrís, Tariello og Arabær tóku þátt að nýju og runnu veigarnar sem fyrr vel ofan í hátíðargesti. Öll gallerí á Stokkseyri tóku líka þátt og nutu gestir þess vel, sem og aðstandendur.“

Þetta getur bara batnað

„Undirbúningur er þegar hafin að Haustgildi næsta árs enda er óhætt að segja nú að viðburðurinn sé kominn til að vera og er það afar gleðilegt. Breytingar og fyrirkomulag á Haustgildi 2023 verður kynnt með góðum fyrirvara. Leiðarstef fyrir næsta ár verður náttúrulega meira samstarf og að fá fleiri með á hátíðina, njóta uppskeru og fagna haustinu með okkur á Stokkseyri,“ segir Pétur að lokum.

Nýjar fréttir