7.8 C
Selfoss

Ókeypis heilsufarsmælingar á Grímsævintýrum

Vinsælast

SÍBS Líf og heilsa mun í samstarfi við Kvenfélag Grímsneshrepps bjóða upp á ókeypis heilsufarsmælingar á Grímsævintýrum laugardaginn 10. ágúst nk. kl. 13–16 í Félagsheimilinu Borg.

SÍBS Líf og heilsa er samstarfsverkefni SÍBS, Hjartaheilla, Samtaka sykursjúkra og Samtaka lungnasjúklinga. Líf og heilsa hefur síðustu ár boðið upp á heilsufarsmælingar um allt land í samstarfi við sveitarfélög, heilbrigðisstofnanir og fyrirtæki. Yfir 8.000 manns hafa þegið heilsufarsmælinguþar sem mældur er blóðþrýstingur, blóðfita, súrefnismettun og fleiri gildi, auk þess sem fólki gefst kostur á að svara spurningum um ýmsa áhrifaþætti heilsu og nálgast samanburðarniðurstöður á Heilsugátt SÍBS.

Snemmgreining skilar sér hundraðþúsundfalt
„Ef hægt er að varna því að einstaklingur látist 20 árum fyrir aldur fram eða verji jafn löngum tíma við örorku af völdum lífsstílstengdra sjúkdóma, þá sparar það samfélaginu 150 milljónir króna mælt í landsframleiðslu á mann. Þar sem grunnkostnaður við hverja mælingu er um 1.500 krónur skilar ein slík snemmgreining sér hundraðþúsundfalt,“ segir Guðmundur Löve framkvæmdastjóri SÍBS.

Guðmundur segir að í hvert skipti sem mælt er finnist einstaklingar sem í kjölfarið leiti á heilsugæsluna til að fá staðfest hvort þeir þurfi á meðferð að halda við m.a. háþrýstingi, of háu kólesteróli eða skertu sykurþoli. Ódýr lyfjagjöf og bættur lífsstíl geti þar gert gæfumuninn.

Opinber stuðningur lykilatriði
„Stuðningur hins opinbera við heilsufarsmælingar SÍBS Líf og heilsa hlýtur að vera ein besta fjárfesting í annars stigs forvörnum sem miða að því að stöðva framgang sjúkdóms,“ segir Guðmundur. „Öll önnur inngrip sem koma þar á eftir ef einstaklingurinn þróar með sér sjúkdóm eru í senn dýrari fyrir samfélagið og afdrifaríkari fyrir einstaklinginn.“

Máttarstólpar SÍBS styrkja verkefnið
Að sögn Guðmundar hefur það skipt sköpum að SÍBS Líf og heilsa hefur notið stuðnings Máttarstólpa SÍBS, sem séu einstaklingar og fyrirtæki sem styrkja fræðslu- og forvarnastarf samtakanna. Hægt sé að gerast Máttarstólpi með því að hringja í síma 560 4800 á skrifstofutíma eða senda tölvupóst á mattarstolpar@sibs.is.

Nýjar fréttir