7.8 C
Selfoss

Barokkkórinn með söngpartý í Áratungu

Vinsælast

Brokkkórinn, kór hestamanna af höfuðborgarsvæðinu, stendur fyrir söngpartýi í Aratungu í Reykholti laugardagskvöldið 11. maí nk. Sérstakir gestir verða félagar í Karlakór Selfoss.

Stjórnandi Brokkkórsins, Magnús Kjartansson, hefur lagt alls konar spennandi verkefni fyrir meðlimi í vetur. Brokkkórinn startar kvöldinu með að syngja nokkur lög og í kjölfarið stígur Karlakór Selfoss á svið. Í framhaldinu fá allir tækifæri til að þenja raddböndin og skemmta sér og öðrum. Magnús Kjartansson mun sjá um undirspil og sungin verða lög sem allir þekkja.

Brokkkórinn hefur haldið slík partý undanfarin ár í reiðhöll Spretts í Kópavogi við góðan orðstír. Meðlimir eru spenntir að halda austur fyrir fjall og skemmta sér með Tungnamönnum og gestum.

Húsið verður opnað kl. 19:30 og stuðið hefst upp úr kl. 20:00. Miðasala verður við innganginn.

Nýjar fréttir