Tómstundamessa Árborgar 8. maí

Tómstundamessa í Árborg. Mynd: Aðsend.
Tómstundamessa í Árborg. Mynd: Aðsend.

Miðvikudaginn 8. maí nk. fer Tómstundamessa Árborgar fram en þar verður tómstundarframboð í sveitarfélaginu yfir sumarmánuðina kynnt. Síðustu ár hefur sveitarfélagið staðið fyrir kynningu á sumarstarfi fyrir börn og unglinga í Árborg í samstarfi við grunnskóla, íþróttafélög, æskulýðsfélög og aðra aðila sem vinna með tómstundir og skipulagt frístundastarf barna í sveitarfélaginu. Tómstundamessan verður tvískipt, annars vegar verður kynning fyrir alla nemendur grunnskólanna í Árborg kl. 9-13 og hins vegar kynning fyrir foreldra og forráðamenn kl. 16-18. Kynningarnar fara fram í íþróttahúsi Vallaskóla og eru allir velkomnir.