2.8 C
Selfoss

Mikill fjöldi á Sindratorfærunni

Vinsælast

Um 5500 manns voru saman komnin til að horfa á fyrstu torfærukeppni sumarsins. Flugbjörgunarsveitin á Hellu og akstursíþróttanefnd Umf. Heklu höfðu veg og vanda að keppninni sem haldin var með pompi og pragt í blíðskaparveðri á Hellu laugardaginn 4. maí sl.

Geir Evert Grímsson á Sleggjunni hreppti Helluna að þessu sinni en hann stóð efstur að stigum að keppni lokinni með 1774 stig. Geir sýndi flott tilþrif og ók örugglega í gegnum alla keppnina auk þess að klára ána og mýrina með stæl. Í öðru sæti varð Ingólfur Guðvarðsson á Guttanum með 1712 stig. Alls tóku luku nítján keppendur keppni.

Aðrir ökumenn sýndu flott tilþrif. Aron Ingi Svansson á Stormi hreppti tilþrifaverðlaunin í flokki sérútbúinna bíla eftir mikla flugsýningu í brautunum og magnaða björgun frá veltu í tímabraut. Jakob Nielsen Kristjánsson á Pjakknum í götubílaflokki færði flokkinn upp á annað plan og lét vaða í barðið í fyrstu braut og flaug bókstaflega upp brekkuna og fékk tilþrifaverðlaun götubílaflokksins að launum. Haukur Viðar Einarsson á Heklu náði mesta hraðanum í ánni, alls 98 km/klst og var 4 km/klst frá heimsmetinu. Íslandmeistarinn og Heimsmetshafinn Þór Þormar Pálsson náði sér ekki á strik í keppninni en sýndi frábæra takta og fór góða veltu eins og honum einum er lagið. Óskar Jónsson á Úlfinum kom sá og sigraði í götubílaflokki í sinni fyrstu keppni á nýsmíðuðum bíl. Það verður að teljast góður árangur.

Erlendir gestir frá sjónvarpsþættinum Top Gear voru á svæðinu og fengu að taka þátt í keppninni. Bretarnir Cristopher Harris og Freddie Flintoff höfðu það af að enda ofan við miðju í stigatöflunni eftir daginn. Það verður að teljast þokkalegur árangur enda báðir í sinni fyrstu keppni en annar þeirra settirst fyrst undir stýri 30 mínútum fyrir keppni.

Úrslit Sindratorfærunar:
Götubílar
1. sæti 1382 Óskar Jónsson, Úlfurinn
2. sæti 1365 Steingrímur Bjarnason, Strumpurinn
3. sæti 1151 Jakob Nielsen Kristjánsson, Pjakkurinn
4. sæti 335   Jakob Pálsson, Hulk
Sérútbúnir
1. sæti 1774 Geir Evert Grímsson, Sleggjan
2. sæti 1712 Ingólfur Guðvarðarsson, Guttinn
3. sæti 1638 Haukur Viðar Einarsson, Hekla
4. sæti 1277 Ásmundur Ingjaldsson, Bomban
5. sæti 1125 Þór Þormar Pálsson, Thor
6. sæti 1051 Cristopher Harris, Sápan
7. sæti 1050 Freddie Flintoff, Heimasætan
8. sæti 1041 Páll Jónsson, Rollan
9. sæti 997   Skúli Kristjánsson, Simbi
10. sæti 900 Aron Ingi Svansson, Stormur
11. sæti 801 Guðmundur Elíasson, Ótemjan
12. sæti 740 Guðmundur Guðmundsson, Harmrarinn
13. sæti 680 Bjarki Reynisson, Dýrið
14. sæti 461 Guðmundur Max Jónsson, Green Thunder
15. sæti 0     Jón Vilberg Gunnarsson, Light foot
Random Image

Nýjar fréttir