5.4 C
Selfoss
Home Fréttir Ný bók með frásögnum af Kötlugosum 1625-1860

Ný bók með frásögnum af Kötlugosum 1625-1860

0
Ný bók með frásögnum af Kötlugosum 1625-1860

Katla Jarðvangur hefur gefið út bókina Undur yfir dundu í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá síðasta eldgosi í Kötlu. Í bókinni eru frásagnir af kötlugosum á árunum 1625–1860. Höfundur bókarinnar er Már Jónsson, prófessor í sagnfræði við Háskóla íslands. Í inngangi bókarinnar fjallar Már um gosin, höfundana og ritsmíðarnar. Þá gerir hann grein fyrir þeim handritum sem notuð voru við útgáfu bókarinnar.

Í bókinni eru magnaðar frásagnir sjónarvotta sem lýsa ógurlegum eldgosum og beljandi jökulhlaupum í einni stærstu og mikilvirkustu eldstöð landsins. „Fuglar loftsins smáir og stórir misstu sína rétta og eiginlega raust, flug og burði. Þeir væluðu og emjuðu álíka og þá ein kvalin manneskja svo sem í dauðans hættu og fári lengi hrekst eður stödd vera kann. Þeir þorðu og ekki heldur upp í loftið að fljúga vegna þeirra hljóða og eldgangs er í loftinu voru, heldur með sinni emjan og sorgarkvaki skriðu eða flöktu með jörðunni, álíka og þá fuglaungar fyrst flug læra.“ Svo hljóðar lýsing Þorsteins Magnússonar á áhrifum Kötlugoss í september 1625. Mögnuð frásögn hans er gefin út í tveimur gerðum og önnur þeirra óbirt. Meðal höfunda eru séra Jón Steingrímsson sem kom fyrst í Mýrdalinn á fyrstu dögum gossins 1755, Sveinn pálsson læknir sem fylgdist grannt með gosinu 1823.