7.8 C
Selfoss
Home Fréttir Heimsókn frá Changsha, vinabæ Þorlákshafnar

Heimsókn frá Changsha, vinabæ Þorlákshafnar

0
Heimsókn frá Changsha, vinabæ Þorlákshafnar
Kínversku gestirnir ásamt fulltrúum frá Sveitarfélaginu Ölfusi.

Árið 2016 eignaðist Sveitarfélagið Ölfus vinabæ í Kína sem heitir Changsha. Changsha er höfuðborg Hunan-héraðs en þar búa 7,9 milljónir manna. Changsha býr yfir 3000 ára merkilegri sögu. Árið 2017 var Changsha útnefnd menningarborg Austur-Asíu. Einnig tilheyrir Changsha hópi fjölmargra borga sem hafa hlotið titilinn „skapandi borg“ en það er UNESCO sem stendur fyrir þeim tilnefningum. Changsha hlaut alþjóðlegu UN-Human habitats verðlaunin fyrir umhverfisverkefni og skipulag árið 2015. Changsha hefur einnig verið valin hamingjusamasta borg Kína 10 ár í röð.

Snemma í janúar hafði fulltrúi frá Changsha samband við sveitarfélagið, með það markmið að koma á skipulagðri heimsókn frá Changsha til Þorlákshafnar. Miðvikudaginn 30. maí tók sveitarfélagið svo á móti sjö fulltrúum frá Changsha. Formleg móttaka fór fram í Versölum þar skiptumst var á gjöfum. Boðið var upp á snarl úr heimabyggð, söl og harðfisk með íslensku smjöri. Þau voru treg til að smakka og ætluðu alls ekki að fallast á að smakka með smjöri. Að lokum fór það þannig að þeim þótti smjörið merkilegast. Síða var komið við í grunnskólanum þar sem Guðrún skólastjóri tók á móti hópnum. Gestirnir fengu að líta inní 2. og 5. bekk. Þeir áttu ekki til orð yfir þessi fallegu og góðu börn og vildu m.a. láta mynda sig með þeim. Þeir höfðu á orði að í þessum skóla væri nemendum greinilega vel stjórnað og bættu svo við að greinilegt væri að þau fengju næga athygli og umhyggju, sem getur reynst erfitt að veita nemendum í þeirra skólaumhverfi sökum menningar og fjölda nemenda.

Gestirnir höfðu óskað eftir að fá að kynnast orkumálum í Ölfusi og var farið með gestina upp í Hellisheiðarvirkjun. Þar fengu þeir kynningu og skoðuðu jarðhitasýninguna. Eftir hana var tekinn rúntur í Hveragerði, farið í jarðskjálftaherminn og kíkt inn í Reykjardal. Þeim þótti það merkilegt svæði. Síðan var farið í Raufarhólshelli og deginum lokað með yndislegum mat á Hendur í höfn. Eftir liggur boðsbréf til Changsha og ánægðir gestir sem fóru þreyttir en sælir aftur heim til Kína.