10 C
Selfoss
Home Fréttir Listamannaspjall í Listasafni Árnesinga á sunnudaginn

Listamannaspjall í Listasafni Árnesinga á sunnudaginn

0
Listamannaspjall í Listasafni Árnesinga á sunnudaginn
Listasafn Árnesinga í Hveragerði.
Borghildur Óskarsdóttir.

Sunnudaginn 15. apríl nk. kl. 15:00 ræðir Borghildur Óskarsdóttir við gesti um innsetningu sína sem ber heitið Þjórsá og er í Listasafni Árnesinga. Á sýningunni má sjá Þjórsá í öllu sínu veldi frá upptökum til árósa bæði sem eins konnar innrammaða mynd á gólfi og líka sem vídeó þar sem flogið er yfir ána frá upptökunum við Hofsjökul og niður að sjó. Á sýningunni er einnig þula eftir Borghildi sem skoða má bæði sem sjónrænt myndverk eða hlýða á í flutningi höfundar. Þá er þar líka tvöfalt vídeóverk þar sem Borghildur gerir gjörning í húsatótt sem fyrrum var æskuheimili ömmu hennar.

Um nokkurn tíma hefur Borghildur rannsakað ýmislegt sem tengist fjölskyldusögu hennar og skilað niðurstöðunum í formi margbreytilegra listaverka. Í verkinu Þjórsá er áherslan „… ekki lengur á ættfræðina og frásagnir fólksins af baráttunni við sandinn, heldur á beina náttúrutengingu vitundarinnar við umhverfið. … Í verkinu miðlar hún birtu, lit, hreyfingu, hljóðum, áferð, og öðrum eiginleikum umhverfisins sem hafa sterkt fagurfræðilegt aðdráttarafl.“ Segir m.a. í grein eftir Æsu Sigurjónsdóttur sem birtist í sýningarskrá sem safnið gefur út um sýninguna.

Þjórsá Borghildar í Listasafni Árnesinga felur í sér vinsamlega hvatningu til þess að læra að þekkja og virða söguna og landið. Samtímis vekur hún líka pólitískar spurningar um samband manns og náttúru, umhverfis- og virkjanamál. Með því að setja sýninguna Þjórsá upp samhliða sýningu á verkum úr safneign Listasafns Árnesinga verða spurningar um verðmætamat og gildi varðveislu áleitnar. Hvað felst í þeirri siðferðislegu og samfélagslegu ábyrgð að skila verðmætum til komandi kynslóða og hver eru þau verðmæti?

Á sumardaginn fyrsta, 19. apríl verður boðið upp á listasmiðju í Listasafni Árnesinga kl. 16:00-18:00 þar sem börnum og fullorðnum er leiðbeint að gera origami-fugla eða litríkar mósaíkgrímur.

Listasafn Árnesinga er staðsett í Hveragerði og rekið af öllum sveitarfélögunum í Árnessýslu. Það er opið fimmtudaga til sunnudaga kl. 12-18 en frá og með 1. maí er það opið daglega. Núverandi sýningar í safninu munu standa til og með 10. maí. Aðgangur að safninu er ókeypis og allir velkomnir.