6.7 C
Selfoss

Aukinn fjöldi heimsækir Fischersetrið

Vinsælast

Fischersetrið opnar mánudaginn 15. maí nk. og verður opið daglega frá 13:00–16:00 til 15. september. Í setrinu eru til sýnis ýmsir hlutir og myndir tengdir heimsmeistaranum í skák Bobby Fischer, en hann varð heimsmeistari í skák er hann tefldi á móti Boris Spassky í Reykjavík 1972. Hlutir og myndir frá þessu heimsmeistaraeinvígi eru til sýnis í setrinu. Ennfremur myndir frá því tímabili er hann varð íslenskur ríkisborgari og dvöl hans hér á landi síðustu æfiár sín.

Margir líta svo á að þessi viðburður hafi komið Íslandi á kortið, og hafi verið undanfari leiðtogafundarins í Höfða 1986.

Lang stærsti hluti ferðamanna er heimsækja Setrið eru erlendir ferðamenn og varð töluverð aukning í fjölda heimsókna í fyrra m.v. sumarið áður. Ennfremur koma alltaf reglulega erlendir fjölmiðlamenn sem eru að skrifa eða gera fræðsluþátt um einvígið og Bobby Fischer. Nokkrir ferðamenn hafa gagngert heimsótt Ísland til að koma í Fischersetur og að gröf Fishcers.

Snar þáttur í starfsemi Fischerseturs er fjöldi sjálfboðaliða, en nú eins og áður þá eru það sjálfboðaliðar sem standa vaktinu í Setrinu. Í sumar eru það eftirfarandi: Aðalsteinn Geirsson, Árni Erlendsson, Böðvar Jens Ragnarsson, Eiríkur Harðarson, Eysteinn Jónasson, Gissur Jensson, Gísli Sigurðsson, Guðmundur Lýðsson, Gunnar Einarsson, Hjörtur Þórarinsson, Óli Þ. Guðbjartsson, Óskar H. Ólafsson, Valdimar Bragason, Vilhjálmur Sörli Pétursson, Þórður Guðmundsson, Örlygur Karlsson og Sjafnarblóm og þeirra starfsmenn. Fyrir þetta óeigingjana framlag sjálfboðaliðanna erum við í stjórn og framkvæmdaráði Fischerseturs ákaflega þakklát.

Gleðilegt sumar,
Framkvæmdastjórn Fischerseturs á Selfossi.

Nýjar fréttir