Heilir og sælir, kæru Sunnlendingar!
Kór Menntaskólans að Laugarvatni fór í eftirminnilega kórferð til Stokkhólms dagana 7.-11. apríl sl. Kórinn, sem telur 113 nemendur og er talinn sá fjölmennasti á landinu, lagði aðallega áherslu á söng í ferðinni en naut auðvitað fjölbreyttrar menningar í stórborginni.
Kórfélagar komu fram og sungu á hinum ýmsu stöðum við ólík tækifæri. Á ABBA-safninu söng kórinn fyrir gesti lagið „SOS“ eftir hljómsveitina sjálfa, við góðar undirtektir. Þjóðarstoltið skein skært þegar íslenski þjóðsöngurinn var sunginn af fullum krafti á Sergels-torginu þar sem hljómburðurinn var þess líklegur að bera hljóminn alla leið heim til Íslands. Að lokum voru haldnir opnir tónleikar í S:t Mattheus kyrka sem heppnuðust afar vel.

Ferðin var liður í undirbúningi fyrir vortónleika kórsins sem verða sumardaginn fyrsta, þann 23. apríl í Skálholtskirkju. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar á Facebook-síðu kórsins, Kór Menntaskólans að Laugarvatni.
Það er mikil tilhlökkun meðal kórfélaga fyrir tónleikunum þar sem þeir marka endapunkt vetrarstarfsins.
Metta Malín Bridde,
nýkjörin ritnefndarformaður nemendafélagsins Mímis


