Kvenfélagið Eining í Holtum stendur fyrir árlegri aðventuhátíð/aðventumarkaði fyrsta sunnudag í aðventu, þann 29. nóvember nk., kl. 13:00 – 16:00, að Laugalandi í Holtum.
Á hátíðinni gefst frábært tækifæri til að versla jólagjafir og jólagóðgæti beint af handverksfólki og rithöfundum, s.s. flatkökur, rúgbrauð, ullarvörur, tertur, skart, nýútkomnar bækur, villigæsabringur, liháískar hátíðarkökur og margt fleira.
Glæsileg hlutavelta (engin núll!) og kaffisala kvenfélagsins, lifandi tónlistarflutningur, upplestur, andlitsmálun, barnahorn og mögulega líta jólasveinarnir við þegar kveikt verður á jólatrénu við Laugalandsskóla.
Aðventuhátíðin að Laugalandi er orðin fastur liður í jólaundirbúningi margra Sunnlendinga, enda gefst þarna gott tækifæri til að eiga góða stund með fjölskyldu og vinum í aðdraganda jóla um leið og gestir leggja góðum málefnum lið.
Enginn aðgangseyrir og allir hjartanlega velkomnir!

