7 C
Selfoss

Magga söluhæst á landinu í jólabjórnum

Vinsælast

Margrét Rún Guðjónsdóttir, eða Magga eins og hún er kölluð, rekur Risið, Sviðið og Miðbar á Selfossi og er söluhæst á landinu í sölu jólabjórs á þeim veitinga- og skemmtistöðum sem eru í samstarfi við CCEP. Um er að ræða Víking Jólabjór og Thule Jólabjór, sem komu í sölu 31. október.

Mikið hefur verið um að vera í miðbæ Selfoss síðustu vikur.
Árshátíðir og tónleikar hafa fyllt staðina og gestir hafa tekið jólabjórnum fagnandi.

„Hér hefur verið mikið af viðburðum síðustu vikur, en jólabjórinn var frumsýndur 31. október. Hjá okkur eru árshátíðir og tónleikar, og gestirnir okkar eru spenntir fyrir jólabjórnum. Við vonumst til að fá áfram þyrsta gesti svo við höldum okkur á toppnum,“ segir Magga.

Hún segir aukninguna einnig tengjast því að gestir mathallarinnar séu velkomnir upp á Risið Vínbar í ró og næði með veitingarnar sínar þegar það er opið frá fimmtudegi til laugardags. „En að sjálfsögðu sjáum við um drykkina,“ bætir hún við.

Og það er nóg framundan í miðbæ Selfoss. Unnur Birna heldur jazz-jólatónleika og Hæhæ bræðurnir Hjammi og Helgi Jean stýra pubquiz.
Á annan í jólum verður ball með hljómsveitinni Alles Ókei, Nussun og Ízleifi, auk fjölda annarra viðburða. Jólabjórinn verður á krana alla aðventuna og fram yfir hátíðirnar segir Magga.

Nýjar fréttir