Í ágúst var lagt fram fimm mánaða árshlutauppgjör Hveragerðisbæjar sem sýndi að afkoman var um 382 m.kr. lakari en samþykkt fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir.
Sama mynd sést í sjóðstreyminu. Eftir fyrstu fimm mánuðina var veltufé frá rekstri um 149,7 m.kr. og handbært fé frá rekstri um 194,1 m.kr. Upphafleg ársáætlun gerði hins vegar ráð fyrir 1.062,6 m.kr. veltufé frá rekstri og 1.034,7 m.kr. handbæru fé frá rekstri á árinu öllu. Tekjur og gjöld falla ekki jafnt yfir árið og því er ekki hægt að bera fimm mánuði beint saman við tólf. Munurinn sýndi þó strax að fjármunamyndun rekstrarins var langt frá þeim forsendum sem ársáætlunin byggði á.
Sterkur grunnrekstur segir ekki alla söguna
Umræða um sterkan grunnrekstur er rétt svo langt sem hún nær. En hún má ekki verða til þess að horft sé fram hjá fjármagnskostnaði, skuldabyrði og því að fjárhagsáætlunin gerði ráð fyrir mjög háum óreglulegum tekjum af uppbyggingu.
Fyrstu fimm mánuði ársins var rekstrarniðurstaða A- og B-hluta jákvæð um 131,6 m.kr. áður en fjármagnsliðir komu til. Nettó fjármagnsgjöld voru hins vegar um 327,4 m.kr. og heildarniðurstaðan varð því neikvæð um 195,8 m.kr.
Í árslok 2025 námu skuldir og skuldbindingar samstæðu um 9,63 ma.kr. Skuldaviðmið var þá 126% og skuldahlutfall 156%. Í uppfærðri útkomuspá fyrir 2026 er gert ráð fyrir að skuldir og skuldbindingar verði um 10,76 ma.kr. í árslok. Skuldaviðmið er áætlað 136,% og skuldahlutfall 166,%. Skuldastaða Hveragerðisbæjar er í öllu falli orðin mjög þung.
Grunnreksturinn getur þannig verið jákvæður á sama tíma og heildarafkoman er neikvæð. Þegar skuldir eru miklar verður að horfa á myndina í heild.
Tekjur af uppbyggingu skiluðu sér ekki eins og áætlað var
Mikilvægar forsendur fjárhagsáætlunarinnar voru meðal annars gatnagerðargjöld, byggingarréttargjöld og aðrar sambærilegar tekjur tengdar uppbyggingu. Gert hafði verið ráð fyrir um einum milljarði króna af slíkum tekjum á árinu en í lok maí höfðu aðeins um 17 m.kr. skilað sér, eða innan við 2% af þeirri fjárhæð.
Það er ekki þar með sagt að allar þessar tekjur séu tapaðar. Hluti þeirra getur færst milli ára. Þegar áætlun byggir í miklum mæli á tekjum sem eru háðar hraða uppbyggingar og stöðu fasteignamarkaðar verður svigrúmið lítið ef þær skila sér síðar en gert var ráð fyrir.
Vandinn varð því tvíþættur: tekjur sem átti að treysta á skiluðu sér ekki, en sveitarfélagið hafði þegar tekið á sig skuldbindingar sem ekki var hægt að víkja frá með sama hætti.
Skilyrði Lánasjóðs sveitarfélaga
Hveragerðisbær sótti um 600 m.kr. lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga vegna aukinnar fjármögnunarþarfar. Lánið var samþykkt, en sjóðurinn setti það skilyrði fyrir útgreiðslu að lögð yrði fram uppfærð og raunhæf þriggja ára rekstrar- og fjárfestingaáætlun. Samkvæmt upplýsingum bæjarins höfðu slík skilyrði ekki áður verið sett vegna lána til Hveragerðisbæjar.
Bæjarstjórn brást við því og samþykkti uppfærð drög 22. september. Síðar var, eftir ábendingu endurskoðanda, ákveðið að Fasteignafélag Hveragerðis ehf. tæki lánið þar sem það er ætlað til fjármögnunar framkvæmda sem eru á hendi félagsins.
Hvað er til ráða?
Í september vann bæjarstjórn sameiginlega að uppfærðri rekstrar- og fjárfestingaáætlun. Tekjuforsendur voru yfirfarnar og leiðréttar og fjárfestingar endurmetnar. Samþykkt fjárfestingaáætlun ársins 2026 var 1.299 m.kr. Ákveðið var að draga úr fyrirhuguðum fjárfestingum um 528 m.kr., en þar sem kostnaður við tiltekin verkefni hafði þegar farið um 211,4 m.kr. fram úr áætlun varð endurskoðuð fjárfestingaáætlun um 982 m.kr., eða um 317 m.kr. lægri en upphaflega.
Fjárhagsáætlanir þurfa að byggja á varfærnum tekjuforsendum og reksturinn þarf að mynda nægilegt svigrúm til að standa undir skuldum og nauðsynlegri uppbyggingu.
Það jákvæða er að bæjarstjórnin öll, þvert á flokka, hefur ákveðið að vinna saman að fjárhagsáætlun fyrir árið 2027. Viðbrögð bæjarins voru einnig rædd við Innviðaráðuneytið þegar brugðist var við aðstæðum í lok sumars og þar kom fram að inngrip og aðgerðir sveitarfélagsins væru réttar og í takt við stöðuna sem var komin upp.
Það verður viðbúið að ekki verði hægt að ráðast í öll þau verkefni sem fyrir liggja á þeim tíma sem áður var gert ráð fyrir. Um leið þarf að nýta þessa vinnu til að bæta áætlanagerð, kostnaðareftirlit og forgangsröðun framkvæmda.
Núverandi nálgun byggir á varfærni í áætlanagerð, aðhaldi og ábyrgri forgangsröðun. Með því er lagður grunnur að sterkari fjárhagsstöðu Hveragerðisbæjar og svigrúmi til áframhaldandi uppbyggingar á næstu árum. Með samhentu átaki og skynsemi er markmiðið skýrt: að snúa þróuninni við og styrkja fjárhagsstöðu bæjarins.
Hjalti Helgason, varabæjarfulltrúi D-listans í Hveragerði.

