7.2 C
Selfoss

Hvað fær fólk til að flytja, vera eða snúa heim?

Vinsælast

Þróun Selfoss, búsetuval, samfélagsbreytingar og framtíð Suðurlands voru til umræðu á fjölmennu málþingi sem haldið var á Hótel Selfossi þriðjudaginn 10. nóvember. Fjallað var um niðurstöður rannsókna á byggðaþróun og persónuleg reynsla heimafólks sem hefur ólíkar sögur að segja af búsetu á Selfossi.

Málþingið bar yfirskriftina Selfoss og Suðurland, hvert stefnir? og var haldið í samstarfi Háskólafélags Suðurlands, SASS og Háskóla Íslands.

Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, og Tialda Haartsen, prófessor við Háskólann í Groningen í Hollandi hafa undanfarin ár unnið að rannsóknarverkefni um byggðaþróun á Selfossi og Suðurlandi með stuðningi Byggðarannsóknasjóðs.

Hvað skýrir vöxt Selfoss?

Í erindi sínu rakti Þóroddur þróun suðvestursvæðisins og vöxt Selfoss frá upphafi 20. aldar. Hann kynnti niðurstöður kannana um uppruna íbúa, ánægju þeirra með búsetuna og ástæður þess að fólk flytur frá höfuðborgarsvæðinu til Selfoss.

Tialda Haartsen kynnti hollenska rannsókn þar sem fylgst var með ungu fólki úr dreifbýli fram til 35 ára aldurs. Rannsóknin sýndi hversu ólíkar leiðir ungt fólk fer í lífinu. Sumir flytja burt og snúa aftur, aðrir setjast að í öðrum dreifbýlissamfélögum og enn aðrir halda sterkum tengslum við heimabyggðina þótt þeir búi annars staðar.

Fjórar ólíkar raddir heimafólks

Sérstakur dagskrárliður var helgaður röddum heimafólks þar sem fjórir einstaklingar lýstu ólíkri reynslu sinni af búsetu á Selfossi.

Kristín Linda Jónsdóttir, sálfræðingur, flutti til Selfoss eftir rýmingu Grindavíkur. Hún sagði öryggi hafa verið eitt mikilvægasta atriðið við val á nýjum búsetustað. Þar skipti máli að meta m.a. náttúruvá og aðgengi að heilbrigðisþjónustu í neyð.

Rebekka Rut Leifsdóttir Söring, fulltrúi yngri kynslóðarinnar, beindi sjónum sínum meðal annars að menntunartækifærum og mikilvægi þess að ungt fólk gæti stundað nám án þess að flytja úr heimabyggð. Hún taldi mikil tækifæri felast í auknu framboði sveigjanlegs fjarnáms.

Kjartan Björnsson, rakari og rótgróinn Selfyssingur, rifjaði upp hvernig samfélagið á Selfossi hefur breyst í gegnum árin. Frásögn Kjartans dró fram hversu miklar samfélagsbreytingar hafa fylgt vexti Selfoss og hvernig daglegt líf íbúa hefur tekið stakkaskiptum á undanförnum áratugum.

Jóna Katrín Hilmarsdóttir, skólameistari Menntaskólans að Laugarvatni, sagði frá því hvað varð til þess að fjölskylda hennar ákvað að snúa aftur heim á Selfoss þegar í ljós kom að sonur þeirra glímdi við alvarleg veikindi og fötlun.

Hvert stefnir Selfoss og Suðurland?

Í lok málþingsins fóru fram pallborðsumræður með Braga Bjarnasyni, bæjarstjóra Árborgar, Huldu Kristjánsdóttur, sveitarstjóra Flóahrepps, og Antoni Kára Halldórssyni, sveitarstjóra Rangárþings eystra og formanni stjórnar SASS.

Málþingið sýndi vel að byggðaþróun snýst um mun meira en fjölgun íbúa og uppbyggingu húsnæðis. Að baki búsetuvali fólks liggja fjölbreyttar ástæður, allt frá atvinnu- og menntatækifærum til öryggis, fjölskylduaðstæðna, lífsgæða og félagslegra tengsla.

Nýjar fréttir