Eyrbekkingurinn Moira Dís Bichard var að gefa út sína fyrstu bók núna í nóvember. Þetta er barnabók sem heitir Heimskaut og fjallar um ref í vetrarríki sem keppist við það hvern dag að finna mat og komast í hlýja bælið sitt fyrir myrkur. Sagan fjallar um hringrás náttúru og fegurð en líka um hvað er mikilvægt að vera hugrakkur þegar margt fer úrskeiðis. Moira Dís er bæði höfundur teikninga og texta. Hún fór þá leið að mála allar myndirnar sem eru í bókinni og vinna þær síðan fyrir prentun. Að baki bókinni liggur því virkilega mikil vinna. Bókin hennar fæst í verslunum Pennans/Eymundsson en líka í Bókakaffinu á Selfossi og í versluninni Bakkanum á Eyrarbakka.
Myndlistaráhugi Moiru Dísar byrjaði strax á barnsaldri þegar hún var nemandi í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri. Hún útskrifaðist síðan af myndlistarbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti, þaðan lá leiðin í Myndlistaskóla Reykjavíkur og BA-gráðu í myndskreytingu hlaut Moira árið 2025 frá University of Cumbria – Institute of Art and Design í Carlisle í Norður-Englandi.


