7 C
Selfoss

Bækur og blóm

Vinsælast

Fimmtudaginn 26. nóvember efna Harpa Rún Kristjánsdóttir skáldbóndi, Auður Önnu Magnúsdóttir og Steinunn Sigurðardóttir skáld og hálfur Selfyssingur til upplestrar í Blómaborg Hveragerði sem hefst klukkan 16.30.  Skáldsysturnar tala saman um nýútkomnar bækur sínar.  Harpa Rún les úr SKEPNUFÓLK, Auður úr smásagnasafninu MÆÐRUN og Steinunn úr sögu sem hefur titilinn VEISLA ÞRJÚ.

Harpa Rún gefur hér út aðra skáldsögu sína, en hún hefur einnig skrifað leikrit, ljóð og sitthvað fleira. Enn spjallar hún um bændur, að þessu sinni fólk á miðjum aldri í ótilgreindri sveit sem tekst á við þær verstu búmannsraunir sem steðjað geta að – jafnframt því að vera manneskjur. Skepnufólk er fólk sem elskar skepnurnar sínar og skepnuna í sjálfu sér.

Mæðrun er frumraun Auðar en enginn byrjendabragur á.  Sögurnar eru innbyrðis ólíkar, og spanna allan skalann, frá  drepfyndu til átakanlegs.  Og fjalla um hið mikilvæga móðurhlutverk á einkar frumlegan hátt.

Veisla þrjú er fimmtánda skáldsaga Steinunnar, en sú fyrsta, Tímaþjófurinn, kom út 1986.  Veisla þrjú er sjálfstætt framhald af verðlaunasögunni BÓL sem kom út 2023.  LínLín, söguhetjan, stendur frammi fyrir því að lifa, eftir að hafa mistekist að deyja.  Nú fagnar hún nýju lífi sem er henni að óvörum fullt af gleði og ást og hlátri.

Það er yndisleg stemning í Blómaborg, og verður heitt á könnunni meðan skáldsysturnar láta jólaljós sitt skína.

Nýjar fréttir