7.3 C
Selfoss

Spider man vettlingar

Vinsælast

STÆRÐIR:
1 – 3 ára og 4 – 6 ára

GARN:
Alpaca Storm frá Viking 1 dokka í hverjum lit, garnið fæst hjá bobby.is í Hveragerði.
– 1 Blár nr.525
– 1 Rauður nr. 560
– 1 Svartur nr. 503
Eða annað sambærilegt garn.

PRJÓNFESTA:
22/10

ÞAÐ SEM ÞARF:
– Sokkaprjóna/crazy trio 3,5 og 4 mm
– Stoppunál til að ganga frá endum
– 1 prjónamerki

UPPSKRIFT

Fitjið laust upp 32 – 36 lykkjur á sokkaprjóna/crazy trio 3,5 mm.

Tengið í hring og prjónið stroff 1 slétt 1 brugðin 7 cm með bláa litnum.

Eftir stroff er skipt yfir á prjóna nr. 4 og prjónuð ein umferð slétt með bláa litnum, í þessari umferð þarf að auka út um fjórar lykkjur á stærð 4 – 6 ára, það þurfa að vera 40 lykkjur í þeirri stærð svo mynstrið passi en í minni stærðinni er ekki bætt við lykkjum.

Skiptið um lit og prjónið mynstur eftir teikningu í þeirri stærð sem við á.

ÞUMALOP:

Notið aukaband til að prjóna þumallykkjurnar á.

Það sést á mynsturteikningu hvar þumallinn á að vera, fyrir hægri hönd prjónið 2 lykkjur með mynsturlitum, prjónið svo 6 – 7 lykkjur á aukabandið, færið lykkjurnar aftur yfir á hægri prjón og prjónið mynstur eins og teikning segir.

Á vinstri vettling prjónið bandið fyrir þumalinn eins nema nú þarf að passa að gera ekki vettlingana uppá sömu hönd, prjónið þar til að á prjóninum eru 8 – 9 lykkjur, prjónið 6 – 7 lykkjur á hjálparband og færið lykkjurnar aftur yfir á prjóninn sem þið voruð að prjóna og prjónið mynstur eins og teikningin segir.

ÚRTAKA:

Þegar mynstri lýkur er prjónuð ein umferð slétt með rauða litnum áður en farið er í að fækka lykkjum.

Lykkjum er fækkað um fjórar lykkjur í hverri umferð þar til það eru eftir átta lykkjur.

Úrtaka: Prjónið eina lykkju, næstu tvær teknar ein í einu yfir á vinstri prjón eins og eigi að prjóna þær slétt, prjónið þessar tvær slétt saman. Prjónið þar til þrjár lykkjur eru eftir af prjóninum, prjónið tvær lykkjur saman prjónið síðustu lykkjuna. Prjónið hinn helming umferðarinnar eins. Takið svona úr í hverri umferð þar til átta lykkjur eru eftir í allt, þá er slitið frá og stoppunál notuð til að þræða í gegnum lykkjurnar, herðið saman og gangið vel frá endunum.

Þumall

Aukabandið sem var notað fyrir þumalopið er fjarlægt varlega og lykkjurnar tekar upp sitt hvoru megin, samtals 12 – 14 lykkjur, tengið í hring og prjónið með rauða litnum þar til að þumallinn er ca 4 – 5 cm.

Fækkið lykkjum og gerið eins og á vettlingnum, þræðið með stoppunál í gegnum allar lykkjur og herðið að.

Þvottaleiðbeiningar

Þvoið í höndum í köldu/volgu vatni skolið vel og kreistið vatnið úr leggið til þerris.


Okkur þætti vænt um að ef þú setur peysuna á samfélagsmiðla að merkja okkur í póstinum @bobbyjardaetur

Ef aðstoðar er þörf hafið samband við okkur í tölvupósti info@bobby.is.

Uppskrift:
Bobbýjardætur
Breiðumörk 13, Hveragerði – Sími 774 2324
info@bobby.is – www.bobby.is

Nýjar fréttir