5 C
Selfoss

Ljósadagurinn á Laugarvatni

Vinsælast

Næsta laugardag verður skammdegið lýst upp á Laugarvatni. Það er löng hefð fyrir því að hefja aðventuna í dalnum með ljósadeginum. Þorpsbúar hengja upp jólaljósin, gengið verður um skóginn með luktir, jólatré tendrað í Bjarnalundi og kertum fleytt á vatninu.

Í áraraðir hefur þessi dagur skapað góðar minningar sem tengjast samveru, sköpun, fegurð, góðgæti, söng og útiveru. Börn og fullorðnir setja upp söluborð á Jólamarkaði Kvenfélagsins í Héraðsskólanum og varla hægt annað en að komast í jólaskap.

„Maðurinn er landkönnuður í heimi hins breytilega og síkvika ljóss“ (Auður Ava, Dýralíf).

Íbúar og brottfluttir, gestir og gangandi, sjáumst!

F.h. Kvenfélags Laugdæla,
Freyja Rós Haraldsdóttir

Dagskrá Ljósadagsins á Laugarvatni 28. nóvember 2026:

Kl. 13:00 opnar jólamarkaður Kvenfélags Laugdæla í Héraðsskólanum. Þar verður líka selt kaffi/súkkulaði og gómsætar rjómavöfflur, markaðs- og jólastemning. Lionsklúbburinn í Laugardal verður með blóðsykursmælingu og selur flotkerti.
Kl. 16:30 Luktarganga frá Héraðsskóla í Bjarnalundi í samvinnu við Planet Laugarvatn.
Kl. 17:00 Jólaljósin tendruð á jólatré Lions í Bjarnalundi og börnin syngja jólalög.
Kl. 17:30 verður gengið niður að vatni og hin árlega kertafleyting fer fram.

Fontana býður upp á heitt kakó og piparkökur.

Nýjar fréttir