5 C
Selfoss

Tveir Íslandsmeistaratitlar í hús hjá Berserkjum

Vinsælast

Keppendur frá Glímufélaginu Berserkjum áttu stórglæsilegan dag á Íslandsmeistaramótinu í brasilísku jiu-jitsu í galla (Gi) sem fram fór í Ármannsheimilinu í Reykjavík sunnudaginn 22. nóvember. Félagið fór heim með fern verðlaun – tvo Íslandsmeistaratitla og tvö silfurverðlaun – auk þess sem keppendur okkar stóðu sig frábærlega í opnum flokki.

Fannar Júlíusson varð Íslandsmeistari í flokki karla með blátt belti, -82,3 kg, eftir virkilega spennandi og jafna úrslitaglímu.

Ella Rogge varð Íslandsmeistari í flokki kvenna með hvítt belti, -64 kg. Vann hún titilinn á uppgjafartaki

Emil Waagfjörð tryggði sér 2. sætið í flokki karla með hvítt belti, -82,3 kg. Hafði hann verið yfir á stigum en tapaði svo á uppgjafartaki í úrslitaglímunni

Þröstur Valsson hafnaði í 2. sæti í gríðarlega sterkum flokki karla með fjólublátt, brúnt og svart belti, +100,5 kg, en hann er einungis með blátt belti og keppti upp fyrir sig.

Nýjar fréttir