3.9 C
Selfoss

Þreföld undirritun á Selfossi

Vinsælast

Þær Adela Eyrún Jóhannsdóttir, Hulda Hrönn Bragadóttir og Sylvía Bjarnadóttir hafa allar framlengt samninga sína til næstu þriggja ára.

Adela Eyrún er skytta á nítjánda ári sem hefur leikið með meistaraflokki Selfoss síðustu tímabil og verið að fá stærra hlutverk með hverju árinu. Adela hefur einnig verið í U-20 ára landsliði Íslands í síðustu verkefnum.

Hulda Hrönn er einnig á nítjánda ári og leikur sem skytta. Hún hefur verið í stóru hlutverki með meistaraflokki á þessu tímabili ásamt því að leika með U-20 ára landsliði Íslands.

Sylvía er leikstjórnandi á sautjánda ári sem hefur verið að vinna sig inn í hlutverk í meistaraflokki í vetur. Einnig hefur hún leikið ásamt Adelu og Huldu Hrönn lykilhlutverk með 3. flokki félagsins í vetur.

Gríðarleg ánægja er innan deildarinnar að þessar þrjár öflugu stúlkur hafi ákveðið að taka slaginn með okkur næstu árin. Það verður mjög gaman að fylgjast með framþróun þeirra á næstunni í vínrauðu Selfoss treyjunni.

UMFS

Nýjar fréttir