1.5 C
Selfoss

HERRAVETTLINGAR

Vinsælast

Í samstarfi við Bobbý bætist við ný uppskrift í hannyrðahornið. Prjónauppskrift Bobbýjardætra að þessu sinni eru herravettlingar.

Stærðir: S/M og L/XL

Garn: Scout frá Kelbourne 1 hespa eða 2 dokkur Eco Highland frá Viking, garnið fæst hjá bobby.is í Hveragerði.

Eða annað sambærilegt garn.

Prjónfesta: 21/10

ÞAÐ SEM ÞARF

Sokkaprjóna/crazy trio 3,5 og 4 mm

Stoppunál til að ganga frá endum

UPPSKRIFT

Fitjið laust upp 40 – 44 lykkjur á sokkaprjóna/crazy trio 3,5 mm.

Tengið í hring og prjónið stroff 1 slétt 1 brugðin 6 cm.

Eftir stroff er skipt yfir á prjóna nr. 4 og prjónuð ein umferð slétt, í þessari umferð þarf að auka út um 4 – 4 lykkjur, þá eiga að vera 44 – 48 lykkjur.

Helmingur lykkjanna er handarbak og þar kemur mynstur.

Byrjið á að prjóna 1 – 2 lykkjur svo mynstur eftir teikningu og aftur 1 – 2 lykkjur í lok handarbaks, prjónið síðan hinn helminginn af lykkjunum (lófa) sléttar.

ATH. Fjöldi lykkja í mynstri er 20 lykkjur.

Prjónið ca. 5 – 7 cm áður en þumalop er gert.

ÞUMALOP

Notið aukaband til að prjóna þumallykkjurnar á.

Fyrir hægri hönd prjónið 2 lykkjur með mynsturlitum, prjónið svo 8 – 9 lykkjur á aukabandið, færið lykkjurnar aftur yfir á hægri prjónið slétt allan lófann.

Á vinstri vettling prjónið bandið fyrir þumalinn eins nema nú þarf að passa að gera ekki vettlingana uppá sömu hönd, prjónið þar til að á prjóninum eru 10 – 11 lykkjur, prjónið 8 – 9 lykkjur á hjálparband og færið lykkjurnar aftur yfir á prjóninn og prjónið út umferðina.

Prjónið ca 14 – 15 cm áður en byrjað er að taka úr.

ÚRTAKA

Mynstri lýkur þegar farið er að fækka lykkjum en þá er allar lykkjur prjónaðar sléttar.

Lykkjum er fækkað um fjórar lykkjur í hverri umferð þar til það eru eftir átta lykkjur.

Úrtaka: Prjónið eina lykkju, næstu tvær teknar ein í einu yfir á vinstri prjón eins og eigi að prjóna þær slétt, prjónið þessar tvær slétt saman. Prjónið þar til þrjár lykkjur eru eftir af prjóninum, prjónið tvær lykkjur saman prjónið síðustu lykkjuna. Prjónið hinn helming umferðarinnar eins.

Takið svona úr í hverri umferð þar til átta lykkjur eru eftir í allt, þá er slitið frá og stoppunál notuð til að þræða í gegnum lykkjurnar, herðið saman og gangið vel frá endunum.

ÞUMALL

Aukabandið sem var notað fyrir þumalopið er fjarlægt varlega og lykkjurnar tekar upp sitt hvoru megin, samtals 16 – 18 lykkjur, tengið í hring og prjónið þar til að þumallinn er ca 7 – 8 cm. Fækkið lykkjum og gerið eins og á vettlingnum, þræðið með stoppunál í gegnum allar lykkjur og herðið að.

ÞVOTTALEIÐBEININGAR

Þvoið í höndum í köldu/volgu vatni skolið vel og kreistið vatnið úr leggið til þerris.

MYNSTUR

• • • • • •
• • • • • •
• • • • • •
• • • • • •
• • • • • • • •
• • • • • • • •
• • • • • • • •
• • • • • • • •
  • Brugðin lykkja. □ Slétt lykkja

Okkur þætti vænt um að ef þú setur peysuna á samfélagsmiðla að merkja okkur í póstinum @bobbyjardaetur

Ef aðstoðar er þörf hafið samband við okkur í tölvupósti info@bobby.is.

Uppskrift:
Bobbýjardætur
Breiðumörk 13, Hveragerði – Sími 774 2324
info@bobby.is – www.bobby.is

Nýjar fréttir