1.5 C
Selfoss

Sex verkefni á Suðurlandi fengu 1,8 milljónir úr Hvatasjóði

Vinsælast

Sex verkefni íþróttafélaga á Suðurlandi fengu úthlutað samtals 1,8 milljónum króna úr Hvatasjóði íþróttahreyfingarinnar í síðustu viku. Helmingur verkefnanna er í Vestmannaeyjum.

Hæstu styrkirnir á Suðurlandi voru 400 þúsund krónur. Þá hlutu Fimleikafélagið Rán fyrir verkefnið Fimleikar til framtíðar og Skotfélag Vestmannaeyja fyrir kynningarnámskeið í skotfimi fyrir börn og ungmenni. Sundfélag ÍBV hlaut 250 þúsund krónur fyrir verkefnið Öll í sund.

Tvö verkefni í Skaftárhreppi hlutu 250 þúsund krónur hvort. Hestamannafélagið Kópur fékk styrk til að kynna hestinn og hestamennsku fyrir börnum og ungmennum í sveitarfélaginu og Ungmennafélagið Ás fyrir handboltadaga. Þá hlaut Hestamannafélagið Sindri 250 þúsund krónur fyrir æskulýðsstarf í hestamennsku.

57 verkefni fengu 26 milljónir

Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar úthlutaði samtals 26 milljónum króna til 57 verkefna um allt land. Sjóðurinn styrkir verkefni sem stuðla að útbreiðslu íþróttastarfs og auka þátttöku barna og ungmenna. Sérstök áhersla er á verkefni sem tengjast börnum með fötlun, börnum frá tekjulægri heimilum og börnum með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn.

Sjóðurinn er á vegum ÍSÍ og UMFÍ með stuðningi mennta- og barnamálaráðuneytis. Hann tók til starfa í lok árs 2024 og alla jafna hafa verið veittir styrkir úr honum þrisvar sinnum á ári. Þetta er önnur úthlutun ársins úr sjóðnum. Sjóðurinn styrkir verkefni sem stuðla að útbreiðslu íþróttastarfs og auka þátttöku barna og ungmenna. Sérstök áhersla er á verkefni sem tengjast börnum með fötlun, börnum frá tekjulægri heimilum og börnum með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn.

Í Hvatasjóðinn geta sótt íþróttahéruð ÍSÍ og UMFÍ, íþróttafélög og deildir innan ÍSÍ og UMFÍ og sérsambönd í samstarfi við íþróttahéruð, félög eða deildir félaga.

Meiri upplýsingar um Hvatasjóðinn má finna á vefsvæði Svæðisstöðva íþróttahéraðanna: https://www.siu.is/hvatasjodur

Fyrri grein

Nýjar fréttir