6.2 C
Selfoss

Grilluð nautalund

Vinsælast

Matgæðingur vikunnar er Eiður Helgi Héðinsson.

Grilluð nautalund með kartöflumús og rauðvínssósu

Hráefni:

• 800 g nautalund, hreinsuð
• Salt
• 100 g smjör
• 3 hvítlauksgeirar
• 2 greinar rósmarín
• 2 greinar timjan

Aðferð:

1. Kryddið nautalundina með salti.
2. Grillið hana við háan hita þar til hún hefur fengið fallega grillhúð á öllum hliðum.
3. Setjið nautalundina í 90 °C heitan ofn og eldið þar til kjarnhiti nær 50 °C.
4. Þegar nautalundin hefur náð 50 °C kjarnhita er slökkt á ofninum, ofninn opnaður og nautalundinni leyft að hvíla þar inni í 8–10 mínútur.

Kartöflumús

Hráefni:

• 1 kg kartöflur
• 200 g smjör
• 250 ml rjómi
• 3 hvítlauksgeirar
• 2 greinar rósmarín
• Salt

Aðferð:

1. Bakið kartöflurnar heilar í ofni við 180 °C þar til þær eru mjúkar í gegn.
2. Pressið kartöflurnar í gegnum kartöflupressu (sigti virkar líka).
3. Hrærið smjörinu saman við og bætið rjómanum smám saman út í þar til músin verður silkimjúk.
4. Smakkið til með salti.

Rauðvínssósa

Hráefni:

• 500 ml rauðvín
• 500 ml nautasoð
• 2 skalottlaukar, fínt saxaðir
• 1 hvítlauksgeiri
• 1 msk. tómatmauk
• 1 grein timjan
• 40 g smjör
• Salt

Aðferð:

1. Svitið skalottlaukinn í potti með smá olíu.
2. Bætið hvítlauk og tómatmauki út í og ristið í 1–2 mínútur.
3. Hellið rauðvíninu út í og sjóðið niður um tvo þriðju.
4. Bætið nautasoði og timjan út í.
5. Sjóðið rólega niður þar til sósan hefur náð góðu bragði og réttri þykkt.
6. Sigtið sósuna og klárið með smjöri.
7. Smakkið til með salti.

Nú er komið að næsta fórnarlambi að spreyta sig og skora ég því
hér á hann Kristófer Loga Jóhannsson að taka við keflinu og vera næsti
matgæðingur, því ég veit að honum finnst gaman að borða góðan
mat. Engin pressa samt… en það er búið að setja standardinn!

Nýjar fréttir