Átta iðkendur frá Fimleikadeild Selfoss kepptu fyrir Íslands hönd á Evrópumótinu í hópfimleikum í Finnlandi. Mótið bauð upp á gleði, spennu og erfið augnablik, en við erum afar stolt af okkar fólki og framlagi þess til íslensku landsliðanna.
Liðsheild og gleði hjá drengjaliðinu
Drengjalið Íslands hafnaði í fimmta sæti bæði í undanúrslitum og úrslitum eftir vel heppnað mót. Selfyssingarnir Eiður Hilmar Sigmundsson, Birgir Árni Sigmundsson og Hinrik Jarl Aronsson voru þar allir að keppa á sínu fyrsta Evrópumóti.
Mikil liðsheild og gleði einkenndu hópinn og það sást á strákunum að þeim leið vel á keppnisgólfinu. Þeir studdu hver annan og tókust saman á við stórt verkefni. Það var virkilega gaman að sjá Selfyssingana þrjá stíga sín fyrstu skref á Evrópumóti og öðlast dýrmæta reynslu sem þeir taka með sér áfram.
Heiðrún Ósk Sævarsdóttir, þjálfari hjá Fimleikadeild Selfoss, var þjálfari drengjaliðsins og stóð sig frábærlega í því hlutverki. Við erum stolt af hennar framlagi til verkefnisins og vinnunni með þessum efnilega hópi.
Stórkostleg undanúrslit hjá stúlknaliðinu
Elva Lillian Sverrisdóttir og Kristín María Kristjánsdóttir kepptu með stúlknaliði Íslands sem átti stórkostlegan dag í undanúrslitum og tryggði sér efsta sætið inn í úrslitin. Liðið sýndi flottar æfingar og mikla getu og tilhlökkunin fyrir úrslitadeginum var því mikil.
Því miður gengu hlutirnir ekki jafn vel upp í úrslitunum og liðið endaði í sjötta sæti. Það voru sár vonbrigði fyrir öflugt lið sem hafði sýnt hvað í því býr og keppti með mikla erfiðleika í æfingum sínum.
Við erum engu að síður afar stolt af Elvu, Kristínu og liðsfélögum þeirra. Þær lögðu allt í keppnina og skildu allt eftir á gólfinu. Frammistaðan í undanúrslitunum sýndi svo sannarlega getu liðsins og það verður spennandi að fylgjast með þessum efnilegu stelpum áfram.
Kvennaliðið hársbreidd frá verðlaunasæti
Victoria Ann Vokes, Elsa Karen Sigmundsdóttir og Silvia Rós Nokkala Valdimarsdóttir voru fulltrúar Selfoss í kvennaliði Íslands og kepptu allar með liðinu bæði í undanúrslitum og úrslitum.
Silvia varð því miður fyrir meiðslum á trampólíni í úrslitunum. Hún hafði lokið tveimur virkilega góðum stökkum þegar hún meiddist í því þriðja og gat því ekki tekið þátt á næstu áhöldum. Það var sárt að sjá hennar keppni enda með þeim hætti eftir allan undirbúninginn og við sendum henni hlýjar batakveðjur.
Elsa Karen og Victoria Ann eru á yngsta ári í fullorðinsflokki en kepptu engu að síður með stökk með háan erfiðleika sem þær náðu að framkvæma mjög vel.
Kvennaliðið hafnaði í fjórða sæti í úrslitunum, hársbreidd frá bronsverðlaunum. Gríðarlega mjótt var því á mununum eftir harða keppni og við erum afar stolt af okkar stelpum og framlagi þeirra til liðsins.
UMFS

