-0.3 C
Selfoss

Sögusýning í Odda tilbúin

Vinsælast

Sögusýning Oddafélagsins, „Sæmundur fróði og saga Odda 930-1305“ var teiknuð upp fyrir tíu árum af verkefnastjóra Oddafélagsins, í þeim tilgangi að gera hina merku sögu Odda og Oddaverja á miðöldum sýnilega á staðnum fyrir gesti og gangandi. Sýningin er nú uppsett í Oddalundi fyrir neðan Oddakirkju. Merk atriði úr sögu Oddaverja eru á 9 stórum myndaskiltum, en 60 sjálfboðaliðar úr Rangárþingi sátu fyrir á ljósmyndunum, klæddir miðaldabúningum. Myndatakan fór fram fyrir þremur árum, með Brynjari Ágústssyni ljósmyndara og Ellu Reynis búningameistara undir stjórn verkefnastjóra Oddafélagsins, Friðriks Erlingssonar. Eftirvinnslu ljósmyndanna lauk nú í sumar. Mynda- og textaskilti sýningarinnar eru prentuð í Fagform, skiltagerð á Selfossi, en bæði Fagform og ÞH-blikk styrktu þetta verkefni Oddafélagsins með því að gefa alla vinnu og efni sýningarinnar.

Síðastliðinn vetur gerðust Oddfellowbúðir nr. 6, ODDI I.O.O.F., sérstakir styrktaraðilar Sögusýningarinnar í Odda. Þessi hrausta sveit vaskra manna undir forystu Kristjáns Óla Hjaltasonar tók upp á arma sér að hanna og setja saman grindur fyrir skiltaborgina og reistu hana upp í sumar. Og nú í október mættu þeir í Odda til að festa mynda- og textaskilti sýningarinnar upp. Því til viðbótar smíðaði Kristján Óli tvö borð með áföstum bekkjum fyrir gesti sýningarinnar og færði Oddafélaginu að gjöf í tilefni af verklokum.

Formleg opnun sýningarinnar verður laugardaginn 22. maí 2027, en þá verða stóru skiltin tvö við gatnamót Þjóðvegar 1 og Oddavegar væntanlega komin upp. Öllum er velkomið að koma að Odda og skoða sýninguna hvenær sem er, enda er Oddalundur nú orðinn hinn þægilegasti áningarstaður.

Það er óhætt að segja að án aðkomu hinna öflugu heiðursmanna í Oddfellowreglunni væri þetta stóra og mikilvæga verkefni enn á byrjunarreit. Sá mikli stuðningur sem félagið hefur einnig notið frá fyrirtækjum í Rangárþingi og á Selfossi er sömuleiðis ómetanlegur. Stjórn Oddafélagsins þakkar öllum þessum aðilum fyrir styrki þeirra og stuðning svo sögusýningin mætti verða að veruleika: Steinastein ehf., Fjölskyldunni Vindási, Þjótanda ehf., steypustöðinni Spesían ehf., vélsmiðjunni Magna ehf., sveitarstjórum Rangárþings eystra og Rangárþings ytra, Fagform ehf., ÞH-blikk ehf. og síðast en ekki síst félögum í Oddfellowbúðum nr. 6 ODDI.

Friðrik Erlingsson, verkefnastjóri Oddafélagsins, og Gísli Sigmundsson, verkstjóri Oddfellowmanna, skipuleggja aðgerðir.
Gísli Sigmundsson og Kristján Óli Hjaltason reistu skiltagrindurnar fyrr í sumar á votum júnídegi.

Nýjar fréttir