6.2 C
Selfoss

Hrun í Holtsnúp – Hvað er til úrbóta?

Vinsælast

Þann 5. nóv. sl. varð grjóthrun í Holtsnúp undir Eyjafjöllum. Grjótið kom úr efstu klettum fjallsins og valt niður bratta Hellnahólsskriðu, gegnum nýgerðan varnargarð og endaði á þjóðveginum. Annar stór steinn fór yfir garðinn og lenti í vegkantinum. Mikið af smærri steinum valt víðs vegar niður skriðuna. Þessi atburður sýnir að sk. varnargarður er til einskis og veitir aðeins falskt öryggi. Þarna hefur hrunið frá ómunatíð en með aukinni umferð verður meira vart við þetta og hættan á slysum eykst. Má velta því fyrir sér að malartakan úr Holtsnúp sé farin að hafa áhrif á hröpin á fleiri en einn hátt. Malartaka neðst í skriðunni hlýtur að hafa áhrif alla leið upp. Þar að auki má geta þess að uppi í skriðunni var grastó. Var sú trú ríkjandi að þar væri nytjaland huldufólks og þótti það til merkis að aldrei fannst steinvala inni á þessari grastó.

Nú er svo komið að með malartökunni er þessi grastó hrunin og horfin. Það var grafið undan henni. Lengi hefur verið álitið að huldufólk hefni þess sem gert er á hlut þess.

Eina ráðið við því að forðast hrun á veginn er að færa hann fjær fjallinu. Mætti hugsa sér að hafa dýpra svæði meðfram honum fjallsmegin til að grípa hrun. Þá þyrfti e.t.v. ekki að fara mikið á mýrlendi með veginn sem aðilar hjá Vegagerðinni virðast setja fyrir sig. Það mætti leggja nýjan veg neðan við hættusvæðið sem tengdist núverandi vegi ofan við Arnarhól. Það mætti bíða með að leggja veginn sunnan við hann þar til hækkar í sjóðum Vegagerðarinnar.

Hvaða leið sem verður valin til úrbóta má það ekki dragast.

Vigfús Andrésson
Berjanesi Eyjafjöllum

Nýjar fréttir