8.7 C
Selfoss

Banaslys við Skaftafell

Vinsælast

Laust fyrir kl 10 í morgun varð alvarlegt umferðarslys á Þjóðvegi 1 skammt vestan við afleggjarann að Skaftafelli. Tvær bifreiðar sem komu úr gagnstæðri átt skullu saman.
Tveir aðilar, erlendir ferðamenn voru úrskurðaðir látnir á vettvangi. Þetta segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.
Alls voru átta aðilar í bílunum tveimur. Sex aðilar voru fluttir minna slasaðir til aðhlynningar á Landspítalann í Fossvogi með þyrlum Landhelgisgæslunnar.
Fjölmennt lið björgunarfólks frá sjúkraflutningum, slökkviliðum, björgunarsveitum og lögreglu fór á vettvang ásamt tveimur þyrlum Landhelgisgæslunnar. Vinna á vettvangi er langt komin og rannsókn málsins er á frumstigi og í höndum lögreglunnar á Suðurlandi.
Þjóðvegi 1 hefur verið lokað á meðan aðgerðir standa yfir, en ekið er um hjáleið við Skaftafell.

Nýjar fréttir