1.1 C
Selfoss

Hitaveita Grímsnes- og Grafningshrepps gengur frá kaupum á Orkubúi Vaðnes ehf.

Vinsælast

Hitaveita Grímsnes- og Grafningshrepps og eigendur Orkubús Vaðnes ehf. hafa gengið frá samningi sín á milli um að Hitaveita Grímsnes- og Grafningshrepps kaupi allt hlutafé í Orkubúinu. Samtímis var undirritaður samningur um leigu Hitaveitu Grímsnes- og Grafningshrepps á jarðhitaréttindum Vaðnesjarðarinnar. Að auki mun Vatnsveita Grímsnes- og Grafningshrepps taka yfir kaldavatnsveitu Orkubús Vaðnes í Vaðnesi. Kaupin fela í sér að Hitaveita Grímsnes- og Grafningshrepps tekur við rekstri Orkubúsins og kaupir allan búnað og lagnir félagsins. Gjaldskrá félagsins helst óbreytt í kjölfar kaupanna þangað til að innleiðing félagsins til sveitarfélagsins er lokið. Í kjölfar samningsins verður ráðist í frekari orkuöflun á Vaðnesjörðinni í samráði við landeigendur.

Þessi samningur stórt skref fyrir áframhaldandi uppbyggingu sveitarfélagsins en með þessu bætast um 270 notendur við núverandi hitaveitukerfi sveitarfélagsins sem telur um 530 notendur fyrir. Töluverð eftirspurn er eftir heitu vatni í sveitarfélaginu og mikil uppbygging íbúðarhúsa og frístundahúsa auk frekari atvinnureksturs framundan.

Næsta verkefni er borun á nýrri vinnsluholu en ÍSOR er búið að hanna nýja holu í grennd við núverandi vinnslusvæði. Borun nýrrar vinnsluholu á að vera lokið árið 2024 ef allt gengur eftir.

Eigendum Orkubús Vaðnes og ábúendum jarðarinnar er þakkað fyrir gott samstarf liðinni ára og horfum við björtum augum á framtíðina hvað orkuöflun varðar.

Nýjar fréttir