3.9 C
Selfoss

Óskilamunir að andvirði hálfrar milljónar

Vinsælast

Í nóvember vann umhverfisnefnd Grunnskólans í Þorlákshöfn að verkefni tengdu óskilamunum. Í umhverfisnefnd eru fulltrúar hvers bekkjar og fulltrúar frá starfsfólkinu. Þau ákváðu að taka alla óskilamuni úr skólanum, flokka þá og telja. Kasta að lokum meðalverði á hlutina og leggja saman heildarfjármuni sem lágu bara á ,,göngunum“.

Það er skemmst frá því að segja að áætluð heildarverðmæti reyndust vera um 550.000 kr. Í þessari viku hafa umsjónarkennarar rölt með bekkina sína og spjallað um verðmætin sem liggja í óskilamununum og velt fyrir sér hvers vegna enginn saknar þessara hluta.

Fatnaðurinn verður uppi út þessa viku í skólanum en að henni lokinni verður farið yfir fatnaðinn og megnið gefið til Rauða krossins.

Nýjar fréttir