2.3 C
Selfoss

Hreinsunardagur Selfosskirkju á laugardaginn

Vinsælast

Á laugardaginn 27. apríl frá kl. 10 til 14 er árlegur hreinsunardagur Selfosskirkju. Undanfarin ár hefur sá háttur verið hafður á að efna til hreinsunar og tiltektar í kirkjugarði og á lóð kirkjunnar. Það er ánægjulegt að sjá fólk koma og taka þátt í þessu verkefni og hreinsa leiði ástvina í leiðinni. Stór gámur verður á svæðinu. Boðið verður uppá hressingu í hádeginu. Fólk er beðið að hafa með sér garðáhöld, þeir sem það geta. Sóknarnefndin, aðal- og varamenn, fólk úrkirkjukórnum og aðrir starfsmenn kirkjunnar taka vel á móti ykkur.

Björn Ingi Gíslason,
formaður sóknarnefndar

Nýjar fréttir