4.9 C
Selfoss

Síðustu skeiðleikar ársins

Vinsælast

Fjórðu og síðustu skeiðleikar Baldvins og Þorvaldar og Skeiðfélagsins fóru fram á Brávöllum á Selfossi mánudaginn 29.ágúst. Veðuraðstæður voru með ágætum og prýðistímar náðust í öllum vegalengdum.

Þetta tímabil markar ákveðin tímamót fyrir Skeiðfélagið þar sem þetta var tíunda keppnistímabilið í röð sem haldið er eftir að Skeiðfélagið var vakið úr dvala sem það hafði legið í frá árinu 2009. Sumir af núverandi Skeiðfélagsmeðlimum hafa verið með frá upphafi og lagt sitt af mörkum við að halda heiðri skeiðkappreiða á lofti.

Hans Þór Hilmarsson er stigahæsti knapi sumarsins og hlaut hann því 100.000 króna gjafaúttekt í verslun Baldvins og Þorvaldar. En þau Guðmundur Árnason og Ragna Gunnarsdóttir í Baldvin og Þorvaldi hafa staðið ríkulega við bakið á Skeiðfélaginu síðastliðin ár og styrkt um öll verðlaun. Auk þess fékk Hans Þór til varðveislu farandbikarinn Öderinn sem gefinn er af Gunnari Arnarssyni og Kristbjörgu Eyvindsdóttur til minningar um Einar Öder Magnússon.

Í 250 metra skeiði var það Konráð Valur Sveinsson sem fór með sigur af hólmi á Kastori frá Garðshorni á Þelamörk á tímanum 22,23 sekúndum. Hann sigraði þá einnig keppni í 150 metra skeiði á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu II á tímanum 14,15 sekúndum sem er næstbesti tími ársins í þeirri vegalengd. Í 100 metra skeiði var það hinsvegar Teitur Árnason sem var hlutskarpastur á Drottningu frá Hömrum II á tímanum 7,34 sekúndum sem er næstbesti tíminn í þeirri vegalengd í ár.

Skeið 250m P1

Í fyrsta sæti var Konráð Valur Sveinsson á Kastori frá Garðshorni á Þelamörk, tími 22,23. Í öðru sæti var Viðar Ingólfsson á Ópal frá Miðási, tími 24,07. Í því þriðja var Hans Þór Hilmarsson á Jarli frá Þóroddsstöðum, tími 25, 07.

Skeið 150m P3

Í fyrsta sæti var Konráð Valur Sveinsson á Kjarki frá Árbæjarháleigu II, tími 14,15. Í öðru var Þórdís Erla Gunnarsdóttir á Óskastjörnu frá Fitjum, tími 14,87 og í þriðja sæti var Sara Sigurbjörnsdóttir á Blævari frá Rauðalæk, tími 15,12.

Flugskeið 100m P2

Í fyrsta sæti var Teitur Árnason á Drottningu frá Hömrum II, tími 7,34. Í öðru sæti var Konráð Valur Sveinsson á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu II, tími 7,46. Í þriðja sæti var Jón Ársæll Bergmann á Rikka frá Stóru-Gröf ytri, tími 7,60.

Nýjar fréttir