7.3 C
Selfoss

Kino á Cafe Vatnajökli

Vinsælast

Það er stundum talað um Viktor Tsoi og Kino einsog tónlist þeirra og ljóð hafi fellt Sovétríkin. Það er býsna bratt en hrein staðreynd hljómsveitin spilaði gríðarlega rullu í þeirri hugarfarsbreytingu sem var undanfari hrunsins. Á sama tíma er Tsoi eins og rafmagnaður Dylan, sem hljóp undan þjóðinni sem vildi gera hann pólitískum spámanni eða praktískum Messíasi.

Til að skilja orsakasamhengið er jafnvel nauðsynlegt kynna sér andófs-intelligentsíuna í St.Pétursborg á níunda áratugnum, en það kallast einmitt á við það hversu nauðsynlegt það er, hér og hvar sem er, listamenn og menningarvitar hafi kifæri til iðka nauðsynlega gjörninga, umræðu og áhugamál.
Tsoi var bæði hinn leyndardómsfulli Jim Morrison sem var svo tengdur við kosmísk öfl að hann þurfti  vera utangarðs, en um leið mjög virkur þátttakandi í sameiginlegu listasenunni í Pétursborg milli 1982-1988-Rock Club fjölskyldunni, þar sem öll stóru skáldin, nsmiðir og tónlistarmenn héldu sameiginlega risatónleika og sulluðust milli hljómsveita ogtóku þátt í uppsetningum hver annars.

Gímaldin mun kynna ljóðin og lögin sem höfðu svona gríðarleg áhrif, syngja lögin á íslensku og myndast við að reyna að setja allt í samhengi, einsog framast er unnt. Flest eru sammála um að kominn sé tími á breytingar í Rússlandi nútímans og þessvegna ekki fráleitt að líta til þess hvernig það var gert síðast.

Dagskráin verður á Cafe Vatnajökli, laugardaginn 28.maí og hefst klukkan 18.00.

Nýjar fréttir