6.7 C
Selfoss

Hlýtt úti

Vinsælast

Aðstandendafélag hjúkrunarheimilisins Kirkjuhvols á Hvolsvelli afhenti heimilinu hjólastólagalla að gjöf.

Hjólastólagallinn Hlýtt úti er sérhannaður með aldraða og hreyfihamlaða í huga. Hlýtt úti er hannaður af Ólöfu Árnadóttur. Hugmyndin varð til þegar móðir Ólafar veiktist alvarlega og átti erfitt um gang.

Hlýtt úti hjólastólagallinn  er sérsaumaður útivistargalli,loðfóðraður, vatns-og vindþéttur og gefur möguleika á aukinni útiveru og gæðastundum allan ársins hring.

Framleiðandi: P & Ó

F.h. Aðstandendafélagsins
Katrín J. Óskarsdóttir

Ásta Rut Ingimundardóttir
F.v. Sólveig Eysteinsdóttir hjúkrunarforstjóri,  Sigurlín Óskarsdóttir og Katrin J. Óskarsdóttir

Nýjar fréttir