3.9 C
Selfoss
Home Fréttir Akrein á brúnni yfir Eystri Rangá lokað á morgun

Akrein á brúnni yfir Eystri Rangá lokað á morgun

0
Akrein á brúnni yfir Eystri Rangá lokað á morgun

Í tilkynningu frá Veitum kemur fram að á morgun, miðvikudaginn 26. mars, hefja Veitur undirbúningsvinnu við endurnýjun hitaveitulagnar sem liggur með brúnni yfir Eystri Rangá. Gert er ráð fyrir að þessi undirbúningsvinna standi til og með 3. apríl.

Á meðan á vinnunni stendur má búast við truflunum á umferð þar sem annarri akrein brúarinnar verður lokað. Ljósastýring verður sett upp svo umferð ætti að ganga nokkuð greiðlega.

Fimmtudaginn 4. apríl verður svo hitaveitulögninni skipt út. Þá má búast við meiri truflunum á umferð. Tímasetningar þessa hluta framkvæmdanna verða kynntar nánar þegar nær dregur.