3.9 C
Selfoss
Home Fréttir Sr. Gunnar Jóhannesson tók við starfi sóknarprests í Hvera­gerð­isprestakalli

Sr. Gunnar Jóhannesson tók við starfi sóknarprests í Hvera­gerð­isprestakalli

0
Sr. Gunnar Jóhannesson tók við starfi sóknarprests í Hvera­gerð­isprestakalli
Sr. Gunnar Jóhannesson.

Þann 1. september sl. tók sr. Gunnar Jóhannesson við starfi sóknarprests í Hvera­gerð­isprestakalli. Er hann skipaður í embættið fram á næsta sumar. Gunnar er kvæntur Védísi Árna­dóttur kennara og eiga þau fjögur börn. Gunnar hefur síðast­liðinn 4 ár starfað sem sóknar­prestur í Noregi og var þar áður sóknar­prest­ur í Hofsóss- og Hóla­presta­kalli í Skagafirði í 11 ár.
„Ég er afskaplega glaður yfir því að fá að koma hingað. Það eru forréttindi að fá að starfa hér í Hveragerði. Bærinn og sveitin eru einstaklega falleg og ég hlakka mikið til að kynnast fólkinu hér og starfa með því“, sagði Gunnar af þessu tilefni.