![Kynningarfundur Flugakademíu Keilis á Selfossflugvelli Kynningarfundur Flugakademíu Keilis á Selfossflugvelli](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/08/hqdefault.jpg?fit=480%2C360&ssl=1)
Töluverður fjöldi var samankominn á Selfossflugvelli í gærkvöldi. Flugakademía Keilis, sem hefur haft afnot af Selfossflugvelli fyrir flugkennslu sína (nánar í frétt dfs.is hér), hélt kynningu á náminu fyrir viðstadda. Þegar allt var talið voru um 40 manns á öllum aldri mætt til að hlýða á kynninguna. Í myndbandinu má sjá flugvélar þjóta um loftið og styttri útgáfu af kynningunni.