7.8 C
Selfoss

Jól í skókassa hjá Þjórsárskóla

Vinsælast

Árlega tekur Þjórsárskóli þátt í verkefninu Jól í skókassa. Það er hluti skólans í verkefninu um sjálfbærni. „Jól í skókassa“ er alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn og fullorðna til þess að gleðja börn sem búa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim gjafir. Skókassarnir verða sendir til Úkraínu. Allur skólinn tekur þátt í verkefninu, lögð er áhersla á að nýta það sem til er, setja í kassana dót og fatnað sem börnin eru hætt að nota. Góðar umræður spunnust í kringum þessa vinnu m.a. um kærleik og hjálpsemi.

Nýjar fréttir