3.9 C
Selfoss

Styrkur í nafni Halla á Sólheimum

Vinsælast

Á vordögum veittu Jötun ehf. og Hestamannafélagið Sleipnir Unni Lilju Gísladóttur 200.000 króna styrk sem veittur var í nafni Haralds Páls Bjarkasonar eða Halla á Sólheimum eins og hann var kallaður. Haraldur starfaði hjá Jötni og var meðlimur í Hestamannafélaginu Sleipni en hann var bráðkvaddur á heimili sínu 26. janúar 2016. Haraldur hafði mikinn áhuga á hestamennsku og öllu sem tengdist henni og þá sérstaklega þegar fjölskyldan stundaði áhugamálið saman. Halli hafði einnig mikinn áhuga á að sjá unga knapa vaxa og dafna sem hestamenn og lagði hann mikið upp úr því við dóttur sína, Huldu Björk, að hún væri alltaf vel til höfð og á snyrtilegum hrossum þegar hún byrjaði að keppa. Halli reyndi eftir fremsta megni að aðstoða unga knapa án þess þó að gera hlutina fyrir þá.

Guðmundur Þór Guðjónsson, fjármálastjóri Jötuns, sem var bæði vinnufélagi og vinur Halla, tjáði Sleipninmönnum að Jötunn vildi heiðra minningu vinar síns og samstarfsfélaga í samráði við fjölskyldu Halla og Hestamannafélagið Sleipni.

Styrkurinn verður veittur árlega í samræmi við reglur sem hafa verið samþykktar. Verkefninu er ætlað að styrkja við börn, unglinga eða ungmenni til þess að þess að geta stundað hestamennsku og fengið þjálfun sem því hentar.

Í ár var ákveðið að veita ungum knapa í Sleipni tækifæri á að bæta sig og læra meira í hestamennsku sem sýndi mikinn áhuga og stundaði sín hross af eljusemi og natni peningastyrk. Þau settu saman lista með atriðum sem farið var eftir þegar viðkomandi knapi var valinn og ár var Unnur Lilja fyrir valinu.

Nýjar fréttir