1.7 C
Selfoss

Árleg jökulmæling Hvolsskóla

Vinsælast

Hin árlega jökulmæling 7. bekkjar Hvolsskóla á Sólheimajökli fór fram miðvikudaginn 11. október sl. Þetta er í áttunda sinn sem hop jökulsins er mælt. Hopið mældist vera um 60 m milli ára 2016 og 2017 og dýpt lónsins er milli 55–60 m.

Jökullinn mælist hafa hopað um alls 270 m frá því mælingar hófust haustið 2010. Mælingin gekk mjög vel með aðstoð góðra manna úr björgunarsveitinni Dagrenningu. Allir fóru svo að lokum í skoðunar- og skemmtisiglinu á lóninu. Gögn um mælinguna voru svo kynnt í skólanum með myndum og einnig var tekið sýnishorn af jöklinum, stór ísmoli sem var til sýnis meðan hann entist.

Nýjar fréttir