5.6 C
Selfoss
Home Fréttir Snoðun, hlaupahjólsáskorun og kallinn í kassanum á góðgerðarviku

Snoðun, hlaupahjólsáskorun og kallinn í kassanum á góðgerðarviku

0
Snoðun, hlaupahjólsáskorun og kallinn í kassanum á góðgerðarviku
Formaður Nemendafélagsins gekk á undan með góðu fordæmi og safnaði rúmlega hundrað þúsund krónum með því að láta raka af sér hárið.

Í liðinni viku var líf og fjör í Fjölbrautaskóla Suðurlands, en þá fór fram góðgerðarvika NFSu. Í þessari viku gafst nemendum tækifæri að skora hver á annan og aðrir nemendur gátu síðan sett peninga undir sömu áskorun. FSu sérlegur er styrktaraðili SOS barnaþorpsins Jos í Nígeríu og renna öll framlög beint til uppbyggingar þorpsins.

Vikan byrjaði með því að skólinn var skreyttur hátt og lágt og sparibauk komið fyrir í andyri sem nemendur gátu sett í frjáls framlög í. Fulltrúar frá SOS Barnahjálp kynntu starfsemi SOS barnaþorpa. Á miðvikudeginum var Karnival þar sem voru básar þar sem nemendur gátu spreytt sig á léttum þrautum fyrir klink. Einnig var var Fifamót haldið í Pakkhúsinu. Góðgerðardagarnir enduðu svo með lokahátíð í Iðu þar sem kennarar kepptu á móti nemendum í fótbolta, klæddir froskalöppum og sundgleraugum, auk þess sem áskoranir sem framkvæmdar höfðu verið í vikunni voru sýndar og aðrar framkvæmdar á staðnum. Boðið var upp á pylsur og candyfloss eftir hátiðina.

Formaður Nemendafélagsins, Þórunn Ösp Jónasdóttir, safnaði rúmlega 100 þúsund krónum þar sem skorða var á hana að raka af sér hárið. Gjaldkeri nemendafélagsins eyddi talverðum tíma í kassa í andyri skólans, einn ferðaðist frá Þorlákshöfn í skólann á hlaupahjóli og annar gekk í skólann frá Hveragerði á Selfoss. Skólameistari ferðaðist um á línuskautum einn daginn.