4.4 C
Selfoss
Home Fréttir Lestrarbókin Gagn og gaman endurútgefin

Lestrarbókin Gagn og gaman endurútgefin

0
Lestrarbókin Gagn og gaman endurútgefin

Bókaútgáfan Sæmundur hefur endurútgefið bókina Gagn og gaman en bókin kom fyrst út haustið 1933 og þá í einu hefti. Bókin var samvinnuverkefni Ísaks Jónssonar og Helga Elíassonar sem fengu Tryggva Magnússon listmálara til að gera teikningar. Bókin var þá enn í mótun og við endurskoðun hennar árið 1941 var henni skipt í tvö hefti.

Með nýrri og breyttri útgáfu árið 1955 var fyrra heftið prentað í lit. Var það fyrsta skyldunámsbók landsmanna sem var litprentuð. Þórdís dóttir Tryggva teiknaði nýjar myndir við þá kafla sem bætt var við. Seinna heftið var litprentað 1959. Var verkið þá komið í endanlega gerð.

Gagn og gaman var áhrifarík kennslubók. Hún var nær einráð við lestrarkennslu yngstu barna í hálfa öld. Bókin byggðist á hljóðaðferð við lestrarkennslu sem með þessari bók var innleidd í íslenskum skólum. Talið er að um 200 þúsund eintök hafi verið prentuð af fyrra hefti bókarinnar, síðast var það prentað 1985. Bækurnar hafa verið ófáanlegar um áratugaskeið.

Gagn og gaman er mjög vel upp byggt kennslufræðilega enda þaulprófað við kennslu í lestri.

Bókin var liður í fjölþættu skólastarfi þar sem börnin voru látin vinna og leika með stafina til að festa form þeirra og hljóð betur í minni.

Fyrra heftið af Gagn og gaman er hér gefið út til að vekja athygli á merkri bók, sem sannað hefur gildi sitt við lestrarkennslu. Margt hefur breyst frá því bókin var almennt notuð og er hún því einnig skemmtilegur aldarspegill og góð heimild um veröld sem var.