3.9 C
Selfoss
Home Fréttir Myrra Rós í Sólheimakirkju í dag

Myrra Rós í Sólheimakirkju í dag

0
Myrra Rós í Sólheimakirkju í dag
Tónlistarkonan Myrra Rós.

Tónlistarkona Myrra Rós úr Hafnarfirði verður með tónleika í Sólheimakirkju laugardaginn 19. ágúst nk. kl. 14:00. Hún hefur gefið út tvær plötur undir sínu nafni á vegum þýska útgáfufyrirtækisins Beste Unterhaltung en þær eru Kveldúlfur (2012) og One amongst others (2015). Tónlist Myrru má lýsa sem draumkenndu lo-fi þjóðlagapoppi þar sem rödd og gítar spila saman og eru í aðalhlutverki.