![Myrra Rós í Sólheimakirkju í dag Myrra Rós í Sólheimakirkju í dag](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/08/myrraros2.jpg?fit=768%2C473&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/08/myrraros1.jpg?resize=1000%2C1500&ssl=1)
Tónlistarkona Myrra Rós úr Hafnarfirði verður með tónleika í Sólheimakirkju laugardaginn 19. ágúst nk. kl. 14:00. Hún hefur gefið út tvær plötur undir sínu nafni á vegum þýska útgáfufyrirtækisins Beste Unterhaltung en þær eru Kveldúlfur (2012) og One amongst others (2015). Tónlist Myrru má lýsa sem draumkenndu lo-fi þjóðlagapoppi þar sem rödd og gítar spila saman og eru í aðalhlutverki.