7.8 C
Selfoss

Gull Silfur og Bronz á Vormóti JSÍ

Vinsælast

Judosamband Íslands hélt árlegt vormót sitt í fullorðinsflokki um síðustu helgi. Fjögur tóku þátt frá Judofélagi Suðurlands, Arnar Helgi Arnarsson +100kg. Haraldur Ásgeir Haraldsson -100kg. Sara Ingólfsdóttir -63kg. og Agla Ólafsdóttir -70kg. Liðsmenn Judófélagsins glímdu vel þennan daginn og uppskáru öll sæti á verðlaunapalli. Agla Ósk hélt viðteknum hætti og sigraði sinn flokk, Arnar Helgi varð að lúta í gras fyrir í úrslitaglímu og fékk því silfur en Sara Íngólfsdóttir og nýliðinn Haraldur Haraldsson fengu

Bronz fyrir frammtistöðu dagsins. Segja má að niðurstaðan hafi verið ánægjuleg í alla staði og eru sunnlendingar sannanlega að setja mark sitt á Judoheima.

Nýjar fréttir