9.5 C
Selfoss

Skógur verður til

Vinsælast

Síðastliðið haust fagnaði Skógræktarfélag Selfoss því að 40 ár voru liðin frá undirritun samnings á milli Selfossbæjar og Skógræktarfélags Selfoss um land til skógræktar. Nú í vor eru 40 ár liðin frá fyrstu framkvæmdum í Hellisskógi og er það ekki síður tilefni til fagnaðar.

Nýja landið leit ekki vel út fyrir 40 árum og þurfti margt að gera svo svæðið teldist nýtanlegt sem verðandi útivistar- og skógræktarsvæði. Félagsmenn í skógræktarfélaginu, unglingavinna Selfossbæjar og starfsmenn í Áhaldahúsi bæjarins unnu þrekvirki þetta fyrsta ár. Svæðið var hreinsað af drasli, gamlar girðingar fjarlægðar og nýjar settar í staðinn og gömlu fjárhúsin rifin. 

Skógrækt ríkisins reisti hliðgrind og sá um plægingu á hluta mýrarsvæðisins og Gísli í Byggðarhorni tætti fyrir skjólbeltum.
Aðalstarf sjálfboðaliða í skógræktarfélaginu þetta fyrsta vor var síðan að planta þrjú þúsund alaskavíðiplöntum í skjólbelti neðst á svæðinu rétt innan við innganginn. Alls voru gerð 1,2 km löng skjólbelti.

Annað af fyrstu verkefnum var að stinga niður græðlingum í ræktunarbeð. Settir voru niður 1000 græðlingar af alaskavíði og 2000 græðlingar af alaskaösp. Trén uxu vel og tveimur árum seinna var þeim plantað út í landið umhverfis beðið. Þar eru nú 40 árum síðar skógarlundir með stórvöxnum öspum en lítið sést eftir af víðinum.

Ekki gera allir þeir fjölmörgu gestir sem heimsækja Hellisskóg sér grein fyrir þeirri vinnu sem sjálfboðaliðar í Skógræktarfélagi Selfoss hafa lagt á sig öll þessi ár til að gera Hellisskóg að þeirri paradís sem hann er í dag. Einnig ber að þakka dýrmætt starf ýmissa hópa sjálfboðaliða sem hafa komið að vinnu í skóginum í gegnum tíðina bæði við plöntun og viðhald t.d. göngustíga. Árlega er plantað í skóginn, lagðir eða lagfærðir göngustígar og vegir, og skógurinn grisjaður og snyrtur eftir þörfum. Allt krefst þetta undirbúnings og vinnu.

Heimsóknir í Hellisskóg eru fastur partur af tilveru margra Selfyssinga og verður það vonandi um alla framtíð. Góð umgengni um skóginn og virðing fyrir því starfi sem þarna hefur verið unnið er forsenda þess að svæðið verði áfram eftirsóknarvert til útivistar og færi gestum þá gleði og hugarró sem skógarganga veitir og er öllum nauðsynleg í hraða nútímans.

Hægt er að fræðast nánar um Hellisskóg og starf Skógræktarfélags Selfoss á heimasíðu félagsins hellisskogur.is.

Aðalfundur Skógræktarfélags Selfoss verður haldinn í Mörkinni, Grænumörk 5, miðvikudaginn 22. apríl kl. 20. Þar verður meðal annars erindi um mögulega stækkun Hellisskógar og aðlögun að nýja Suðurlandsveginum og brúnni.

Allir eru velkomnir.

Nýjar fréttir